Niðurstöður

Ef draga ætti saman niðurstöðu verkefnisins í eina setningu þá væri hún sú að nemendur við HÍ telja allt of mikið ósamræmi í framsetningu upplýsinga á Canvas eftir námskeiðum og að þetta ósamræmi geri þeim erfitt fyrir við að nálgast nauðsynlegar upplýsingar á Canvas.

Markmið og ferli

Markmið verkefnisins var að gera úttekt á notendaupplifun nemenda á Canvas og kortleggja hvað væri vel gert í kerfinu og hvað mætti betur fara.

Niðurstöður

Ef draga ætti saman niðurstöðu verkefnisins í eina setningu þá væri hún sú að: nemendur við HÍ telja allt of mikið ósamræmi í framsetningu upplýsinga á Canvas eftir námskeiðum og að þetta ósamræmi geri þeim erfitt fyrir við að nálgast nauðsynlegar upplýsingar á Canvas.

Samanburðargreining á nokkrum námskeiðsvefjum rennir stoðum undir þetta mat nemenda þar sem afar mikill munur var á því á milli námskeiða hvar tiltekna efnisþætti var að finna. Einnig sást mikill munur á því hvaða möguleika í Canvas var verið að nota.

Í notendaprófum og netkönnun kom fram að nemendur sjá sérstaklega mikið gagn í dagatalssýninni í Canvas og kalla eftir því að hún verði vel nýtt.

Þrátt fyrir framangreinda vankanta á notkun Canvas sem fram komu í verkefninu má þó greina margt jákvætt.

Nemendur eru upp til hópa jákvæðir gagnvart kerfinu og telja það hafa mikla möguleika.

Þó töldu margir að kennarar þyrftu mögulega meiri stuðning og tíma til að læra á kerfið og kynna sér alla möguleika þess.

Nemendur:

Bjarki Sigursveinsson
Björk Birkisdóttir
Sigríður Kristín Jónasdóttir
Sigurður Hólm Gunnarsson
Stefanía Haraldsdóttir