Notkun Canvas í HA og HÍ

Hér verður sagt frá svörum frá Háskólanum á Akureyri og verklagið þar borið saman við verklagið í Háskóla Íslands.

Notkun Canvas í Háskólanum á Akureyri og Háskólanum í Reykjavík

Haft var samband við kennslusvið Háskólans á Akureyri til að forvitnast um hvort einhver vinna væri í gangi um samræmingu á framsetningu kennsluefnis, þ.e. kennsluáætlunum og framsetningu á efni á Canvas.

Einnig hafði hópurinn samband við þá sem sjá um Canvas í Háskóla Íslands.

Hér verður sagt frá svörum frá Háskólanum á Akureyri og verklagið þar borið saman við verklagið í Háskóla Íslands.

Háskólinn á Akureyri – Sniðmát og tékklisti

Háskólinn á Akureyri er með ákveðna grunnþætti í sniðmáti hjá sér að námskeiðsáætlunum sem er keyrt yfir öll námskeið við HA.

Á forsíðu eiga að koma upplýsingar um umsjónarkennara, stillingar (vegið meðaltal) í einkunnabók, dæmi um uppsetningu á síðum (þema, lærdómsviðmið, námsefni, verkefni), sniðmát af námskeiðsáætlun, röðun á valmynd þar sem þau forrit sem eru mest notuð eru sett fram.

Unnt er að skoða þetta betur á eftirfarandi síðum:

Háskóli Íslands

Háskóli Íslands hefur hins vegar ekki farið þessa leið, kennarar hafa hver sína leið til að birta kennsluáætlanir sínar. Kennarar hafa þó aðgang í leiðbeiningum um Canvas, um atriði sem eigi heima í kennsluáætlun og leiðbeiningar um það hvernig megi setja upp langar kennsluáætlanir má finna hér:

Einnig hefur verið sett upp sniðmát fyrir kennsluáætlanir í opnu efni í Canvas sem kennarar geta flutt inn í eigin námskeið.

Fyrirmyndar námskeið

Háskólinn á Akureyri hefur á stefnuskrá hjá sé að setja upp nokkur „fyrirmyndar námskeið“ í Canvas handa kennurum til að skoða og nýta til hliðsjónar þegar þeir setja upp námskeið á vefnum.

Þetta er í sama farvegi og hjá HÍ að þessu leyti, stefnt að uppsetningu á ákveðnum stöðluðum framsetningum á námskeiðum í Canvas, án þess að skuldbinda kennara til að fylgja þeim að fullu.

Hins vegar geri fjölbreytt nám það að verkum að sniðmát þurfi að vera ólík til að uppfylla ólíkar þarfir. Á Canvas hjá HÍ eru þó ákveðin sniðmát þannig að búið er að setja inn ákveðna tengla í valmynd námskeiðs og stillingar hafðar eins og talið er að henti flestum, en kennarar hafa alveg frjálsar hendur til að breyta og móta að vild.

Auk þess stendur til hjá HÍ að deila t.d. matskvörðum, uppsetningu verkefna ofl. í opnu efni sem kennarar munu þá geta flutt inn í sín námskeið og staðfært að þeirra þörfum.

Ítarefni