Spurningakönnun um Canvas kennslukerfið
Send var út spurningakönnun um Canvas kennslukerfið þann 27. mars 2021 á 448 nemendur úr 16 námskeiðum í HÍ haustið 2020 og vorið 2021. Ítekun var send 29. mars. Alls svöruðu 79 nemendur eða um 17,5%.
Markmiðið með könnuninni var að fá fram hvað nemendur upplifa sem jákvætt við kennslukerfið og hvað mætti bæta. Sérstök áhersla var á að kanna hvort nemendur upplifðu misræmi milli þess hvernig kennarar nota Canvas til að miðla upplýsingum.
Samantekt á niðurstöðum
Alls svöruðu 79 nemendur könnuninni. Helstu niðurstöður eru þær að almenn ánægja er með Canvas kerfið en þó eru gerðar töluverðar athugasemdir við það að kennarar kunna misvel á kerfið og nota það ólíkt. Flestum nemendum þykir mikilvægt að allir noti dagatalið til að birta mikilvægustu upplýsingarnar. Í stuttu máli telja nemendur Canvas gott kerfi sem þó væri hægt að bæta verulega með samræmdari vinnubrögðum kennara.
Hér fyrir neðan eru allar þær spurningar sem spurðar voru í könnuninni og svör. Nokkur áhugaverð svör við opnum spurningum eru birt hér á þessari síðu en tengill yfir á öll svör er að finna við hverja spurningu.
Spurningar og svör
1. Hver er aldur þinn?
Smellið á mynd til að sjá allar niðurstöður á sér síðu.
Einn þátttakandi var 60 ára og eldri en dreifing aldurs var nokkuð jöfn í öðrum aldurshópum.
2. Hvert er kyn þitt?
Smellið á mynd til að sjá allar niðurstöður á sér síðu.
Alls tóku 61 kona og 18 karlar þátt í könnuninni.
3. Hversu oft notar þú Canvas?
Smellið á mynd til að sjá allar niðurstöður á sér síðu.
Lang flestir notuðu Canvas oft í viku eða daglega. Aðeins fimm notuðu Canvas einu sinni í viku eða sjaldnar.
4. Uppsetning kennara á Canvas svæði var vel skipulagt og auðvelt að finna upplýsingar.
(Merkið AÐEINS við þau námskeiði sem þið hafið setið haustönn 2020 eða vorönn 2021.)
Smellið á mynd til að sjá allar niðurstöður á sér síðu.
Eins og sjá má var upplifun þátttakenda af notkun kennara af Canvas svæðum ólík eftir námskeiðum. Í sumum námskeiðum töldu flestir nemendur að Canvas vefur væri vel skipulagður en í öðrum námskeiðum taldi meirihluti að vefurinn væri ekki nógu vel skipulagður.
5. Hvaða svar lýsir best þinni upplifun við eftirfarandi fullyrðingum um upplýsingar í Canvas?
Smellið á mynd til að sjá allar niðurstöður á sér síðu.
- Aðeins fleiri nemendur töldu að það væru ekki sambærilegar upplýsingar á Canvas svæðum kennara.
- Flestir sögðu að stundum eða aldrei væru upplýsingar um kennslutíma í dagatali Canvas.
- Meirihluti sagði að stundum eða aldrei væru upplýsingar um kennslutíma í stundatöflu í Canvas.
- Meirihluti svarenda töldu misræmi vera í upplýsingum um kennslutíma í dagatali og stundatöflu í Canvas.
- Flestum fannst auðvelt að finna upplýsingar í Canvas. Um þriðjungi svarenda fannst þó stundum eða aldrei auðvelt að finna upplýsingar.
6. Hversu sammála eða ósammála ertu eftirfarandi fullyrðingum?
Smellið á mynd til að sjá allar niðurstöður á sér síðu.
- Mikill meirihluti taldi að kennarar ættu að samræma betur uppsetingu á Canvas svæðum sínum. Aðeins um 5% voru því ósammála.
- Meirihluti var því ósammála eða mjög ósammála að kennarar væru almennt að nota Canvas á sambærilegan hátt.
- Töluverður meirihluti taldi að nemendu ættu að fá betri kynningu á Canvas kennslukerfinu.
7. Hversu mikilvægt finnst þér að eftirfarandi upplýsingar komi fram í DAGATALI í Canvas?
Smellið á mynd til að sjá allar niðurstöður á sér síðu.
Nemendum fannst mikilægast að eftirfarandi upplýsingar kæmu fram í dagatali í Canvas:
- Skiladagar verkefna
- Próf
- Kennslutímar
- Zoom tímar
- Námsefni
- Upptökur af tímum
- Panopto Video
- Verkefnalýsingar
- Ítarefni
- Fæstum fannst mikilvægt að hafa ítarefni í dagatali.
- Stórum hluta (en þó ekki meirihluta) fannst ekki mikilvægt að birta námsefni, upptökur, panopto video og verkefnalýsingar í dagatali.
Opnar spurningar
8. Eitthvað annað sem ekki var nefnt í spurningu 7 sem þér finnst mikilvægt að komi fram í dagatali?
Þrettán einstaklingar svöruðu. Þrír svöruðu einfaldlega nei og einn sagðist nánast ekkert nota dagatalið í Canvas.
Nokkur áhugaverð svör:
- Dagatal er fínt til að halda utan um hverja kennslustund fyrir sig með því efni sem á við hverju sinni. Hinsvegar er það óhentugt ef efnið er ekki líka aðgengilegt annarsstaðar svo auðvelt sé að fá aðgang að því, sama hvort það sé lesefni, upptökur, glærur eða annað efni. Það er óhentugt að þurfa alltaf að leita í dagsetningum á dagatlainu fram og aftur til að ná í eitthvað efni sem maður er að leita að.
- Væri mjög þægilegt að geta sett inn lesefnið í dagatalið til að sjá hvenær maður þarf að vera búin að lesa hvað og geta hakað út það sem maður er búin að lesa.
- Hvort um stað- eða fjartíma er að ræða
- Mætti vera tengt dagatali í Office/Teams
- Dagatalið er bara notað í einu námskeiði og mér finnst betra að skoða tilkynningar
- Staður og stund kennslustunda
- Samþætting við Outlook dagbók
- Hvenær verkefni koma inn og hvenær er skiladagur.
- Mér finnst þurfa að passa að það sé ekki of mikið efni og of mikið af upplýsingum í “Dagatal” – Held það yrði þá of yfirþyrmandi og maður myndi ekki nenna að leita þangað.
9. Hvað er það besta við Canvas kennslukerfið?
41 einstaklingur svaraði þessari spurningu.
Nokkur áhugaverð svör:
- Mér finnst til þess að gera auðvelt að nálgast námsefni, ítarefni og upplýsingar um kennslufyrirkomulag kúrsanna í Canvas, en það fer reyndar eftir því hvernig kennarar setja síðurnar upp. Sama á við varðandi einkunnirnar, þær finnst mér gott að sjá og í leiðinni hversu mörg prósent af hverjum hluta maður er búinn að uppfylla, en það getur virkað afar uppörvandi og hvetjandi að sjá á þann hátt hvernig náminu miðar.
- Það er fint að hafa öll samskipti kennara á einum stað í Canvas og auðvelt að finna það sem maður leitar eftir. gott að fá þetta sent sem tölvupóst líka. Samskipti í hópum og við nemendur er óhentugt í Canvas því það fylgir því mikið tölvupósta flæði og margt fer framhjá fólki í slíkum samskiptum, hef alltaf hætt að nota það sem samskipta leið hópavinnu og notast við aðrar leiðir til samskipta.
- Almennt þægilegt og notendavænt. Mikil framför frá moodle. Gott að hafa allt á sama stað. Væri óskandi að geta sameinað alveg við Ugluna svo maður þurfi ekki að vera með 2 kerfi í gangi.
- Verkefna og skilakerfið finnst mér ansi gott
- Nútímalegt, þægilegt, hægt að nálgast upplýsingar í síma líka.
- Sé það notað rétt er hægt að hópa saman ákveðnum viðfangsefnum. t.d. Einsog Ragna, allt gæðastjórnunar dótið er hér, allar greinar, fyrirlestrar, glærur o.s.frv.
- Almennt vel uppsett og auðvelt kerfi. Svo er geggjað þegar kennarar skipuleggja hvert námskeið vel og setja það skipulega upp.
- Mjög gott yfirlit yfir námskeiðið. Mikill munur frá Uglu/Moodle
- Að geta verið með app í símanum
- Allt á einum stað og nokkuð vel aðgengilegt.
- Auðveldar skipulag.
- Að geta séð skipulag sjónrænt í dagatali
- Appið
- Dagatalið með verkefnunum á. Að allt sé á einum stað og að ég þurfi mjög sjaldan að fara á ugluna eða aðra staði. Umræðuþræðir.
10. Er eitthvað sem kennarar gætu bætt þegar þeir nota Canvas til að miðla upplýsingum?
38 svöruðu þessari spurningu. Langflest svörin fjölluðu um að kennarar þyrftu að samræma notkun sína á Canvas.
Nokkur áhugaverð svör:
- Samræma sig!!!
- Ef umræðutímar eru hluti af kúrsinum mætti gjarna vera vettvangur þar sem hægt er að vera með nokkurs konar spjallþráð, ekki bara fyrir fjarnema, heldur einnig fyrir staðnema. Það koma oft áhugaverðir punktar upp í umræðum þar sem getur verið gott að hafa aðgengi að og deila með samnemendum t.d. slóðum á vefsíður.
- Hafa allar glærur og upptökur á einum stað en ekki bara í calander. Fyrst og fremst þarf að samræma aðferðir kennarar því engin notar þetta eins sem gerir það að verkum að maður þarf að læra inn á hvern kennara fyrir sig. Þetta gerir það að verkum að efni er vistað og kynnt alveg tvist og bast sem er afar óhentugt.
- Nota sömu skipulagningu á vikuáætlunum. Nemendur nota alltaf Teams til hopa vinnu í stað canvas vegna þess að canvas er svo flókið og slow
- Passa að tengja allt efni við dagatalið svo maður geti séð allt á einum stað og fengið betri yfirsýn yfir skipulagið hjá sér.
- Sumir nota tilkynningar, aðrir skilaboð, sem mér finnst heldur ruglingslegt.
- Bara að allir myndu nota það eins, það er ruglingslegt að þurfa að muna hvernig hver kennari vinnur.
- Panopto upptökur eru ekki allstaðar eins. Það er mjög þægilegt að geta spólað til baka um 10 sek. með einum smelli. Stundum er það ekki hægt og maður þarf að smella bendlinum í línuna og fer þá kannski of langt aftur. Mjög pirrandi
- Vanda upptökur. Hafa þær ekki of langar. Betra að skipta uppptöku í t.d. þrennt.
- Samræma hvar upplýsingar á borð við námsefni eru geymdar! A.m.k. þrenns konar fyrirkomulag í gangi í þeim fimm námskeiðum sem ég sit núna.
- Sömuleiðis slæmt þegar kennarar eru að hlaða inn skrám úr Uglu og þær lenda í undirundirundirmöppum, voru sex skref til að finna námsefni í námskeiði á haustönn og hluti nemenda fann efnið einfaldlega ekki. Yfirleitt ætti ekki að geyma námsefni undir skrám heldur námsefni. Ekki setja kennsluáætlun í viðhengi heldur hafa hana aðgengilega sem síðu í Canvas.
- Já, samræma framsetningu og skipulag námsefnis svo nemandi geti gengið að ákveðnum þáttum vísum fyrirfram en þurfi ekki að læra inn á verkferli hvers kennara í ólíkum/mismunandi námskeiðum.
- Að Zoom fundirnir séu aðgengilegri, mér finnst best þegar það er sami linkurinn og hann er efst á heimasvæði námskeiðisins. Það er mjög þreytandi að þurfa að leita að zoom link þegar kennarar geyma þá á mismunandi stöðum (sumir í tilkynningum, tölvupósti, inn á efni vikunnar o.fl.) og maður er lengi að finna linkinn.
- Misjafnt hvar upptökur af fyrirlestrum birtast. Gott að geta horft á upptökurnar í panopto og stillt hraða. Upptökur fyrirlestra hafa batnað gríðarlega í Covid. Hljóðgæði batnað.
- Kennarar ættu að nota Tilkynningar í öllum tilfellum þegar verið er að setja inn nýjar upplýsingar. Það hefur gerst að kennarar breyti “síðu” undir Námsefni sem margir nemendur voru búnir að fara yfir og voru ekki að fara að skoða aftur því þeir héldu að þeir væru búnir með allt þar.
- Sumir kennarar mættu nota flipana betur í stað þess að hrúga öllu á forsíðu námskeiðsins.
- Það eina sem mér dettur í hug er upplýsingar um lokapróf mætti vera skýrara inni á Canvas. Hef lent í því að fá misvísandi skilaboð þar inni varðandi það.
- Að allir noti dagatalið fyrir allt
- Passa að nota dagsetningu og tíma þegar þeir tala um fundi ef þeir eru ekki á calendar (ættu helst að setja á calendar). Láta öll verkefni og próf á calendar í canvas og þar á meðal lokapróf (er í áfanga sem hefur ekki sett öll verkefnin inn og hef ekki séð lokapróf enda þar inni). Kennarar mættu hafa almennan umræðuþráð sem nemendur geta spurt um hluti í þegar eitthvað kemur upp á (hjálparþráð).
- Nota skilaboð aðeins fyrir persónuleg skilaboð, ekki sem zoom funarboð
- Merkja betur hvaða námsefni tilheyri hvaða tíma
- Passa að upplýsingar og annað komist til skila til allra nemenda. Ef einhverju er svarað undir “Chat” eða “Umræður” eða annað að það sé líka sett í “Tilkynningar” eða sendur út póstur til nemenda sem kannski fara ekki daglega inn á þessa linka og þá kannski missa þeir nemendur af mikilvægum upplýsingum.
11. Er eitthvað námskeið sem þú ert í sem þér finnst vera með bestu uppsetninguna í Canvas?
Námskeiðið ÞARF EKKI að vera meðal þeirra sem spurt var um hér fyrir ofan. Vinsamlega skrifið númer og nafn námskeiðsins og hvað það er sem gerir það betra en önnur námskeið.
33 svöruðu þessari spurningu. Nemendur höfðu ólíka sýn á hvaða Canvas svæði voru best upp sett. Erfitt er að álykta mikið af þessum svörum þar sem fáir nemendur höfðu setið sömu námskeið.
Áhugavert gæti verið fyrir kennara og umsjónafólk Canvas að rýna svörin.
12. Eitthvað annað sem þú vilt koma á framfæri um Canvas kennslukerfið og hvernig það er notað?
27 einstaklingur svaraði þessari spurningu.
Nokkur áhugaverð svör:
- Mér finnst sárlega vanta leit í kerfið. Ég nýti mér leitir mjög mikið á vefum og það fækkar músasmellum margfalt að geta leitað […].
- Það mætti vera hægt að senda kennurunum einkaskilaboð í Canvas […].
- Það vantar kynningu á Canvas kerfinu fyrir nýnema og einnig á Uglu[…].
- Dagatalið er góð hugmynd, en það er margt sem mætti bæta. Glugginn titrar alltaf þegar maður smellir á eitthvað atriði í dagatalinu. Og til þess að fara út úr atriði í dagatalinu, verður maður að smella á pínulítinn X-takka, því ef smellt er annarsstaðar á dagatalinu til þess að komast út, opnast “Breyta viðburði” gluggi.
- Í farsímaappinu, þegar það eru fleiri atriði á forsíðu námskeiðs en komast fyrir á skjánum þá er ekkert sem bendir notanda á að það þurfi að skrolla niður. Ef kennari hefur sett upp einhver atriði sem að eru ekki í Canvass í öðrum námskeiðum, þá getur gerst að nemandi taki ekki eftir atriðinu ef það kemur fyrir neðst og nemandi er að nota farsíma appið.
- Kennarar þurfa að læra betur á kerfið
- Ég þarf oft að smella á milli og reyna að finna upplýsingar. Ef það yrði samræmt hvernig kerfið er notað á milli kennara, þá þyrfti maður örugglega ekkert að pæla í því. Einn kennari setur tímana ekki inn í dagatalið, sem er óþægilegt. En kennarar mættu líka setja það sem reglu að þeir setji alltaf allt efnið inn á sama degi, annars þarf maður að vera að kíkja af og til og endurhlaða síðuna til að athuga hvort eitthvað hafi bæst við það sem þeir höfðu áður sett inn í dagatalið.
- Hugsa að kennarar þurfi betri leiðbeiningar um hvernig á að nota canvas. Ætti kannski að setja eitthverjar reglur um hvernig það er gert. Annars er enn vandamál með að tilkynningar skili sér ekki. […]. TL;DR samvinnutólið í Canvas er vonbrigði
- Var ég búin að nefna samræming, nota calender 🙂 Nauðsynleg könnun –
- Nei, bara að mér finnst það mjög næs, gott og auðvelt. Miklu (miklu!) betra en Moodle nokkurn tímann var.
- Maður er enn að venjast þessu umhverfi eftir að vera nýbúinn að venjast moodle. Það er kannski eitt og það er að það væri betra ef nýjast væri efst. T.d. ef maður fer í námsefni og ætlar að skoða viku 11 þá þarf að skrolla niður allt í stað þess að það nýjasta og það sem verið er að kenna hverju sinni sé bara efst.
- Mætti vera skemmtilegri umræðuvettvangur kannski fyrir fjarnema.
- Þarf að kynna Zoom betur. Kennarar virðast ekki vita hvernig best er að senda út fundarboð. Tengja Zoom við dagatal.
- Mér finnst þetta í raun mjög gott kerfi, fínt viðmót og aðgengilegt. Ég skil vel að kennarar hafi sumir átt í ákveðnum erfiðleikum með að tileinka sér það í þessum krefjandi kringumstæðum. Flestir nota það ágætlega en það er samræmið sem vantar sárlega upp á.
- Finnst Canvas mjög þægilegt – en finnst samt asnlegt að þurf líka að nota Ugluna. […]
- Þokkalegt verkfæri til að samræma og auka skilvirkni kennara og nemenda í framsetningu upplýsinga.
- Ég væri til í að forsíðan væri með skiladögum verkefna og próf í öllum námskeiðum
- Mér finnst gott að tengja námsefni og fyrirlestra við dagatalið. En það mætti einnig hafa allar upptökur af fyrirlestrum aðgengilegar í flipa. Stundum er óþjált að leita í dagatalinu og því gott að geta nálgast efnið í einum lista.
- Það er þægilegt og hefur hentað vel. Finnst það spara mér tíma og fyrirhöfn. Allt á sama stað.
- Það mætti vera meira tæknilegra og auðveldara í notkun. Nemendur nota meira teams en Canvans til að mynda í hópaverkefnum.
- Fólk fær oft ekki notifications um þegar eitthvað gerist í hópum, mér finnst frekar að það ætti að vera automatically kveikt á því og að nemendur geti síðan slökkt ef þeir vilja frekar en að vita ekki að umræða sé í gangi í hópnum.
- Í upphafi fannst mér Canvas kerfið mjööög flókið. Átti erfitt með að átta mig á hlutunum, hvernig námskeiðin voru sett upp, hvar var hægt að finna námsefni og fleira. En með tímanum hefur þetta orðið betra. Mætti kynna Canvas betur fyrir nemendum því kerfið hefur margt upp á að bjóða sem nemendur eru kannski ekki endilega að nýta sér af því þeir vita ekki af möguleikum kerfisins. Verð líka að koma því á framfæri að mér finnst frekar óþægilegt að kennarar séu bæði að nota “Skilaboð” inni á Canvas OG Outlook póstinn. Finnst það ætti að vera meira samræmi eða bara að allir kennarar myndu bara notað annað hvort.






