Samanburðargreining – Námskeið

Samanburðargreining á valmynd námskeiða í Canvas
Canvas er með tvær valmyndir.
1) Aðalvalmynd fyrir allt kerfið.
2) Valmynd fyrir einstök námskeið (þessi síða).
Hér verður borið saman hvernig efni sem er að finna í valmynd fyrir einstök námskeið er notað í þrem ólíkum námskeiðum.
Í mörgum tilfellum er notkun alveg eins í öllum námskeiðum en í öðrum tilfellum ekki sem getur þá valdið óþægindum fyrir nema.
Í aðalvalmynd voru eftirfarandi tenglar skoðaðir:
Heim – Tilkynningar – Kennsluáætlun – Námsefni – Verkefni – Umræður – Chat – Zoom – Fólk – Einkunnir – Panopto Video
Heim (forsíða)
Vefstjórnun og upplýsingaarkitektúr (UPP110F)
Engar tilkynngar á forsíðu en þar er að finna:
1) Námsefni vikunnar
Stutt lýsing á námsefni vikunnar.
2) ZOOM netspjall
– Tengill á Zoom spjalltíma í vikunni.
3) Stóra verkefnið
– Tengill á umrætt verkefni
– Eftirfarandi texti: Haldið áfram með stóra verkefnið. Nú er komið að því að vinna með efnið sem búið er að safna og byrja að hanna upplýsingaarkitektúrinn.
4) Umræða til námsmats
– Tengill á umræð till námsmats.
5) Verkefnaskil
– Tengill á verkefni til skila í þessari viku.
6) Annað
– Tengill á “Hagnýtar upplýsingar um námið”.
—
Upplýsingadálkur til hægri á forsíðu
Lengst til hægri á forsíðu eru gagnlegar upplýsingar í eftirfarandi flokkum:
Skoða námskeiðisstreymi – (Hnappur)
Ef smellt er á hnappinn sjást:
– Allar tilkynningar frá kennara
– Öll “Samræðuskeyti” (virðist vera tölvupóstar sem kennari hefur sent í gegnum Canvas á alla nemendur, ekki einkaskeyti)
– Verkefnastilling (Upplýsingar um ný verkefni sem hafa verið stofnuð af kennara)
– Umræður (Listi yfir umræðuþræði)
Skoða námskeiðisdagatal – (Hnappur)
Tengill vísar á Dagatal námskeiðisins.
Skoða tilkynningar frá námskeiði – (Hnappur)
Ólíkt því sem búist er við eru hér ekki tilkynningar um námskeiðið heldur vísar tengillinn á stillingarsíðu þar sem nemendur geta stillt hvernig breytingar eða tilkynningar berast. Eðlilegra væri að hnappurinn væri kallaður “Stillingar” eða eitthvað i þá átt.
Todo
Listi þar sem fram kemur hvenær þarf að skila af sér næstu verkþáttum og prófum en einnig eru þar allar nýlegar tilkynningar, næstu tímar og Zoom tenglar.
Námskeiðishópar
Tengill á vinnusíðu í Canvas fyrir þá verkefnahópa sem nemandi tilheyrir í námskeiðinu.
Nýleg endurgjöf
Upplýsingar um nýlegar einkunnir.
Þarfagreiningar og notendaupplifun á vef (HMM229F)
Efst eru Nýlegar tilkynnningar. Í raun bara ein tilkynning frá kennara þar sem viðkomandi hefur bara sett inn eina tilkynnningu þar sem nemendur eru boðnir í áfangann. Tilkynningar annars ekki notaðar.
Síðan koma tveir fellivalsgluggar:
1) Um áfangann
– Grunnnupplýsingar
— Heiti námskeiðs, einingafjöldi, lágmarkseinkunn til að ná áfanga og upplýsingar um hve mikið vægi hver verkþáttur hefur á lokaeinkunn. Engar upplýsingar um skiladaga).
– Námskeiðislýsing
— Stutt lýsing á námskeiði og námsefni.
– Námsmat
— Nánari lýsing á verkefnum, prófum og vægi þeirra.
2) Námsefni
– Tengill á allar glærur.
– Tengill á upplýsingar um námsbækur.
—
Upplýsingadálkur til hægri á forsíðu
Lengst til hægri á forsíðu eru gagnlegar upplýsingar í eftirfarandi flokkum:
Skoða námskeiðisstreymi – (Hnappur)
Ef smellt er á hnappinn sjást:
– Allar tilkynningar frá kennara (bara ein eins og áður segir)
– Öll “Samræðuskeyti” (virðist vera tölvupóstar sem kennari hefur sent í gegnum Canvas á alla nemendur, ekki einkaskeyti)
Skoða námskeiðisdagatal – (Hnappur)
Tengill vísar á Dagatal námskeiðisins.
Skoða tilkynningar frá námskeiði – (Hnappur)
Ólíkt því sem búist er við eru hér ekki tilkynningar um námskeiðið heldur vísar tengillinn á stillingarsíðu þar sem nemendur geta stillt hvernig breytingar eða tilkynningar berast. Eðlilegra væri að hnappurinn væri kallaður “Stillingar” eða eitthvað i þá átt.
Todo
Listi þar sem fram kemur skýrt hvenær þarf að skila af sér verkþáttum og prófum.
Námskeiðishópar
Tengill á vinnusíðu í Canvas fyrir þá verkefnahópa sem nemandi tilheyrir í námskeiðinu.
Nýleg endurgjöf
Upplýsingar um nýlegar einkunnir (“Ekkert núna” stendur við þennan áfanga, enda engin einkunn borist).
Miðlun í hljóðvarpi og hlaðvarpi (HMM235F)
Efst eru Nýlegar tilkynnningar. Aðeins seinasta tilkynning sést á forsíðu.
Síðan koma margir fellivalsgluggar.
Hver gluggi er merktur einni kennsluviku.
Dæmi:
11. janúar -14. janúar: Útvarpið sem miðill
– Útvarpið sem miðill – kynning.pptx (tengill á glæru)
– Upptaka af tíma 14. janúar (tengill á upptöku)
Allar vikur birtast með sambærilegum hætti og undir fellivalsglugga hverrar viku er að finna eftir atvikum tengla á:
– Glærur
– Upptökur
– Verkefni sem þarf að skila í þeirri viku.
– Leiðbeiningar og ítarefni
Á forsíðunni er því hægt að sjá á einum stað öll verkefni og námsefni, en ekki þó upplýsingar um kennslutíma (hvar og hvenær).
—
Upplýsingadálkur til hægri á forsíðu
Lengst til hægri á forsíðu eru gagnlegar upplýsingar í eftirfarandi flokkum:
Skoða námskeiðisstreymi – (Hnappur)
Ef smellt er á hnappinn sjást:
– Allar tilkynningar frá kennara
– Öll “Samræðuskeyti” (virðist vera tölvupóstar sem kennari hefur sent í gegnum Canvas á alla nemendur, ekki einkaskeyti)
Skoða námskeiðisdagatal – (Hnappur)
Tengill vísar á Dagatal námskeiðisins.
Skoða tilkynningar frá námskeiði – (Hnappur)
Ólíkt því sem búist er við eru hér ekki tilkynningar um námskeiðið heldur vísar tengillinn á stillingarsíðu þar sem nemendur geta stillt hvernig breytingar eða tilkynningar berast. Eðlilegra væri að hnappurinn væri kallaður “Stillingar” eða eitthvað i þá átt.
Todo
Listi þar sem fram kemur skýrt hvenær þarf að skila af sér verkþáttum og prófum.
Nýleg endurgjöf
Upplýsingar um nýlegar einkunnir.
Tilkynningar
Vefstjórnun og upplýsingaarkitektúr (UPP110F)
Yfirlit yfir allar tilkynningar frá kennara.
Þarfagreiningar og notendaupplifun á vef (HMM229F)
Yfirlit yfir allar tilkynningar frá kennara.
Miðlun í hljóðvarpi og hlaðvarpi (HMM235F)
Yfirlit yfir allar tilkynningar frá kennara.
Kennsluáætlun
Vefstjórnun og upplýsingaarkitektúr (UPP110F)
Kennsluáætlun á 7 síðum.
Efnisyfirlit á hverri síðu:
1. Um þetta námskeið
2. Hvað muntu læra
3. Viðmið um vinnustundir
4. Kennsluefni/Lesefni
5. Kennsluskipulag
6. Námsmat
7. Akademískar kröfur
Efnisflokkarnir sjö eru lýsandi og á síðu 1 er myndband og nokkuð langur texti um námskeiðið.
Tafla með kennsluáætlun
Neðar er tafla þar sem fram kemur hvenær tímar eru og hvenær á að skila verkefnum.
Við fyrstu skoðun upplifi ég of miklar upplýsingar í löngu rituðu máli sem hugsanlega væri hægt að stytta.
Þarfagreiningar og notendaupplifun á vef (HMM229F)
Kennsluáætlun á einni síðu.
Tafla með kennsluáætlun.
Í töflunni kemur fram hvenær tímar eru og hvenær á að skila verkefnum.
Stutt og hnitmiðað.
Miðlun í hljóðvarpi og hlaðvarpi (HMM235F)
Kennsluáætlun á einni síðu sem skiptist í tvo hluta:
1) Textalýsing
Yfirlit í bundnu máli yfir kennslutíma og verkefni og lýsing á þeim.
Textinn er ágætur en það er ekki línubil á milli efnisflokka þannig að erfitt/óþægilegt er að lesa. Eitthvað sem er auðvelt að laga.
2) Tafla með kennsluáætlun
Í töflunni kemur fram hvenær tímar eru og hvenær á að skila verkefnum.
Námsefni
Vefstjórnun og upplýsingaarkitektúr (UPP110F)
Á síðunni Námsefni eru mjög ítarlegir fellivalslistar yfir kennslutíma, verkefni, umræðuþræði, lesefni og upptökur.
Yfirflokkarnir eru sjö þegar þetta er skrifað og fer fjölgandi.
Kennari setur efni inn jafn óðum þannig að efst er efni fyrir núgildandi viku en eftir það er eldra efni í réttri tímaröð. Það er elsta efnið ofarlega og nýrra efni neðar. Persónulega finnst mér ruglandi að hafa allra nýjasta efnið efst en síðan eldra efni í eðlilegri tímaröð.
Námsefnissíðan er mjög efnismikil og mörg atriði undir hverri viku.
Sem dæmi lítur vika merkt 7 út svona:
7 | Hönnun á upplýsingaarkitektúr [15. til 21. mars / 10 . vika]
7.1 | Zoom fjarfundir
7.1.1 – ZOOM | Netspjall um stóru verkefnin
7.1.2 – ZOOM | Netspjall um hönnun upplýsingaarkitektúrs og stóru verkefnin
7.2 | Hvað muntu læra
7.2.1 – UM | Hönnun upplýsingaarkitektúrs
7.3 | Hönnun upplýsingaarkitektúrs
7.3.1 – LESA | Hönnun upplýsingaarkitektúrs
7.3.2 – LESA | Þú þarft að þekkja efnið til að geta hannað upplýsingaarkitektúrinn
7.4 | Umræður
7.4.1 – UMRÆÐA TIL NÁMSMATS | Góð ráð, verkfæri og annað sem nýtist við hönnun á upplýsingaarkitektúrs og prófunar á honum
7.5 | Verkefnaskil
Toggl – Vika 10 – 15. til 21. mars
—
Líklega er síðan svo ítarleg þar sem engin hefðbundin kennsla fer fram heldur eru aðallega nokkuð frjálsir umræðutímar haldnir á Zoom.
Þarfagreiningar og notendaupplifun á vef (HMM229F)
Einföld síða með tveim fellivalsgluggum og samtals fimm undirsíðum.
1. Um áfangann
- Grunnupplýsingar
- Námskeiðislýsing
- Námsmat
2. Námsefni
- Glærur
- Bækur
Undirflokkarnir eru beinir tenglar á síður með viðeigandi upplýsingum.
Mjög gott er að geta smellt á Glærur og fengið þar lista yfir allar glærur sem búið er að sýna.
Tekið skal þó fram að fyrri hluta námskeiðs voru bara um tveir glærupakkar undir Glærur. Aðrar glærur þurfti að finna með því að skoða hvern tíma fyrir sig inn í Dagatali á Canvas. Nú eru þó allar glærunar komnar á einn stað.
—
Almennt stutt og hnitmiðuð síða.
Miðlun í hljóðvarpi og hlaðvarpi (HMM235F)
Á síðunni er vel skipulagðir fellivalslistar yfir kennslutíma, verkefni, lesefni og upptökur.
Fellivalslistarnir eru merktir með dagsetningum.
Dæmi:
11. janúar -14. janúar: Útvarpið sem miðill
- Útvarpið sem miðill – kynning.pptx
- Upptaka af tíma 14. janúar
Það er kostur að vikunum er raðað skipulega. Fyrsta vikan er efst og sú seinasta neðst.
Einnig gott að efni fyrir alla önnina er komið inn á síðuna. Þannig er strax hægt að sjá hvað er að gerast á næstu vikum.
Verkefni
Vefstjórnun og upplýsingaarkitektúr (UPP110F)
Tveir fellivalsgluggar með tenglum á verkefni.
Fellivalsgluggarnir birtast í þessari röð:
1) Væntanleg verkefni
2) Fyrri verkefni
Ef nemandi er með vanskilaverkefni birtist efst annar fellivalsgluggi: Vanskilaverkefni.
—
Jákvætt að hægt er að sjá yfirlit yfir öll verkefni á einum stað.
Þarfagreiningar og notendaupplifun á vef (HMM229F)
Einn fellivalsgluggi þar sem hægt er skoða fyrri verkefnaskil:
1) Fyrri verkefni
Ef nemandi er með vanskilaverkefni birtist efst annar fellivalsgluggi: Vanskilaverkefni.
—
Ókostur að ekki er hægt að sjá verkefni framundan og skiladaga.
Miðlun í hljóðvarpi og hlaðvarpi (HMM235F)
Tveir fellivalsgluggar með tenglum á verkefni.
Fellivalsgluggarnir birtast í þessari röð:
1) Væntanleg verkefni
2) Fyrri verkefni
Ef nemandi er með vanskilaverkefni birtist efst annar fellivalsgluggi: Vanskilaverkefni.
—
Jákvætt að hægt er að sjá yfirlit yfir öll verkefni á einum stað.
Umræður
Vefstjórnun og upplýsingaarkitektúr (UPP110F)
Hér eru nokkrir umræðuþræðir um námsefnið. Þátttaka í umræðum er í summ tilfellum metin til einkunnar.
Alls sjö umræðuþræðir þegar þetta er skrifað.
Þarfagreiningar og notendaupplifun á vef (HMM229F)
Þessi eiginleiki er ekki í boði í þessum áfanga.
Miðlun í hljóðvarpi og hlaðvarpi (HMM235F)
Þessi eiginleiki er ekki í boði í þessum áfanga.
Chat
Vefstjórnun og upplýsingaarkitektúr (UPP110F)
Undir Chat er einn spjallþráður og í fyrstu færslu frá kennara segir:
Við ætlum að nota þetta spjall (Chat) fyrir almennt spjall, spurningar um námsefnið/námskeiðið, hjálpast að við að svara og ræða um verkfæri vefsíðugerðar sbr WordPress, HTML, CSS og javaScript.
—
Spjallrásin er lítið notuð og aðeins hluti nemenda hefur skráð inn efni þar.
Þarfagreiningar og notendaupplifun á vef (HMM229F)
Þessi eiginleiki er ekki í boði í þessum áfanga.
Miðlun í hljóðvarpi og hlaðvarpi (HMM235F)
Þessi eiginleiki er ekki í boði í þessum áfanga.
Zoom
Vefstjórnun og upplýsingaarkitektúr (UPP110F)
Listi yfir Zoom fundi námskeiðsins.
Mér sýnist þó bara hægt að sjá fundi sem voru og verða haldnir í mars. Aðra fundi er ekki að finna á síðunni.
Þarfagreiningar og notendaupplifun á vef (HMM229F)
Þessi eiginleiki er ekki í boði í þessum áfanga.
Miðlun í hljóðvarpi og hlaðvarpi (HMM235F)
Þessi eiginleiki er ekki í boði í þessum áfanga.
Fólk
Vefstjórnun og upplýsingaarkitektúr (UPP110F)
Listi yfir nemendur og kennara í námskeiði.
Hér er einnig að finna lista yfir vinnuhópa í námskeiðinu.

Engir hópar eru skráðir.
Einkunnnir
Vefstjórnun og upplýsingaarkitektúr (UPP110F)
Listi yfir öll verkefni, próf, skiladaga og einkunnir ef við á.
Mjög gott að geta séð öll verkefni. Bæði þau sem eru liðin og einnig þau sem eru eftir.
Þarfagreiningar og notendaupplifun á vef (HMM229F)
Listi yfir verkefni, próf, skiladaga og einkunnir ef við á.
Aðeins eru upplýsingar um verkefni sem eru liðin. Ekki er hægt að sjá hvaða verkefni eða próf eru framundan.
Miðlun í hljóðvarpi og hlaðvarpi (HMM235F)
Listi yfir verkefni, próf, skiladaga og einkunnir ef við á.
Mjög gott að geta séð öll verkefni. Bæði þau sem eru liðin og einnig þau sem eru eftir.
Panopto Video
Vefstjórnun og upplýsingaarkitektúr (UPP110F)
Þessi eiginleiki er ekki í boði í þessum áfanga.
Þarfagreiningar og notendaupplifun á vef (HMM229F)
Ekkert er á þessari síðu.
Því væri eflaust betra að sleppa því að hafa þennan tengil í Canvas.
Miðlun í hljóðvarpi og hlaðvarpi (HMM235F)
Ekkert er á þessari síðu.
Því væri eflaust betra að sleppa því að hafa þennan tengil í Canvas.