Huglægt mat hópmeðlima á Canvas
Áður en spurningakönnun var send út á nemendur í 16 námskeiðum tóku hópmeðlimir þessa verkefnis sjálfir könnunina.
Markmiðið var tvíþætt. Annars vegar að koma auga á galla í spurningakönnuninni áður en hún var send út og hins vegar að fá mat á upplifun hópmeðlima á Canvas kennslukerfinu. Gerðar voru nokkrar breytingar á könnuninni eftir að hópmeðlimir tóku þátt.
Mat hópmeðlima á Canvas
Hópmeðlimir voru almennt frekar ánægðir með uppsetningu Canvas námskeiða sem þeir höfðu setið. Þó var greinileg óánægja með uppsetningu á nokkum námskeiðum.
Ekki verður farið nákvæmt í niðurstöður hópmeðlima út frá einstökum námskeiðum.
Helstu niðurstöður
- Ljóst var þó að meirihluti hópmeðlima upplifði ósamræmi í notkun á Canvas eftir áföngum og/eða kennara.
- Allir töldu að kennarar ættu að samræma betur uppsetningu á Canvas svæðum sínum.
- Allir töldu mikilvægt eða nauðsynlegt að eftirfarandi atriði væru í dagatali Canvas:
- Skildagar verkefna
- Zoom tímar
- Kennslutímar
- Próf.
Helstu niðurstöður í myndum

Nokkur svör við opnum spurningum
- Að með upplýsingum um próf eða verkefni fylgi með vægi þeirra, með hlutaprófum fylgi með upplýsingar um það úr hvaða hluta námsefnis sé prófað (úr hvaða vikum) og það sé ljóst hvernig verkefni er um að ræða.
- Kerfið býður upp á góða möguleika til að skipuleggja nám. Stílhreint útlit.
- Canvas kerfið virkar skilvirkt og einfalt þegar það maður fær góðar námskeiðssíður/upphafssíður frá kennara.
- Passa að hafa ekki of mikið af upplýsingum. Samræma hvernig þeir nota Canvas þannig að sambærilegar upplýsingar séu á sambærilegum stöðum.
- Að setja kennslutíma, verkefnaskil og próf inn í dagatalið, auðveldar yfirýn, unnt að sjá hvenær er mest að gera, hvenær er mesta álagið og skipuleggja sig út frá því.
- Það þarf að koma á einhverri lágmarksstöðlun á því hvernig efni er framsett á Canvas, A.m.k. hvernig kennsluáætlun, námsmati, skiladögum og fleiri grundvallaratriðum er komið á framfæri. Það má færa rök fyrir því að það sé ekki gott að binda hendur kennara um of með framsetningu á efni námskeiða en gott væri að hafa einhver “best practice” viðmið um það til leiðbeininga fyrir bæði kennara og nemendur.
- Mætti auka samræmi á milli kennara – þ.e. ekki allt eins en að uppsetning á kennsluætlunum, hvar hlutir eru vistaðir séu samræmdir (Verkefni undir verkefni, zoom tímar undir Zoom, námsefni undir námsefni), það sé ekki allt í belg og biðu og sumt á fleiri en einum stað.