Hvað segja umsjónamenn Canvas hjá HÍ um kennslukerfið?
Rætt var við umsjónamenn Canvas hjá Háskóla Íslands um markmið, árangur, áskoranir og framtíðarsýn á notkun Canvas.
Hér fyrir neðan er stutt samantekt á samskiptum við umsjónamenn Canvas hjá Háskóla Íslands.
Markmið með innleiðingu Canvas
Eitt notendavænt kerfi, tækifæri að þróa rafræna kennslu, bættir verkferlar í kennslu og gera leiðbeiningar aðgengilegar og skýrar, bæta stuðning við kennara á fræðasviðum, sameiginlegt lærdómsamfélag Canvas notenda.
Árangur af Canvas
Kúltúrbreyting, bættir þjónustuferlar fyrir notendur, vantar mælingar á árangri, langtímabreyting í mótun á Canvas.
Áskoranir í Canvas fyrir kennara
Engin teljandi vandamál hafa komið upp. Eðlilegar áskoranir við innleiðingu nýs kerfis. Ýmis stuðningur er fyrir kennara m.a. leiðbeiningar og afnot af beiðnakerfi.
Hvaða sérstöku vandamál eða hvað mætti gera betur í Canvas?
Nemendur vilja:
- meira samræmi í uppsetningu námskeiða
- skýrari uppsetningu
- aukna fræðslu á Canvas
Kennarar vilja:
- svigrúm til að þróa kennsluaðferðir og kennsluhætti innan hvers fræðasviðs.
- fleiri námskeið verða í boði um framsetningu og notkun á Canvas.
- aukna meðvitund kennara um hvað felst í vönduðum námsvef, hvaða verkfæri henta hverju sinni og hvernig best er að setja hluti upp
Möguleg úrræði HÍ fyrir kennara
- Að bjóða upp á persónulega aðstoð og hafa opnar vinnustofur með ráðgjafa.
- Það er í undirbúningi sérstakt námskeið fyrir kennara til að endurskoða námskeið sín út frá 6 tegundum náms, ABC námskeið sem verður haldið í vor.
- Auk þess verður áfram boðið upp á fleiri námskeið í notkun Canvas þar sem lögð verður áhersla á að gera framsetningu skýra með einföldum aðgerðum.
- Framboð af þeim námskeiðum mun aukast og þau smám saman verða fjölbreyttari.