Um notendaprófanirnar
Allir fimm meðlimir hópsins framkvæmdu notendaprófanir á Canvas. Hver og einn hópmeðlimur fékk aðila úr sínu nærumhverfi til að gera stöðluð verkefni í Canvas-umhverfinu.
Lagt var fyrir þessa einstaklinga að leita tiltekinna upplýsinga á Canvas-vef og fylgst var með því hvernig sú upplýsingaleit gekk og hversu langan tíma hún tók.
Fjórir aðilar tóku notendaprófið á Canvas-vef námskeiðsins Vefstjórnun og upplýsingaarkitektúr (UPP110F) en einn aðilanna tók notendaprófið í áfanganum Hnattrænni heilsu (MAN603F).
Fjórir notendur voru konur en einn karl og aldursbil notenda var frá 19 til 34 ára. Upplýsingar um bakgrunn hvers og eins eru í töflunni hér að neðan:
Notendur
Grunnupplýsingar um notendur má finna í eftirfarandi töflu.
| A | B* | C | D | E | |
| Kyn | Kona | Karl | Kona | Kona | Kona |
| Aldur | 19 | 24 | 29 | 33 | 34 |
| Tæknilæsi | 7 af 10 | 9 af 10 | 8 af 10 | 7 af 10 | 6 af 10 |
| Reynsla af Canvas | Hefur notað Canvas í HR í vetur. | Hefur aldrei notað Canvas áður. | Hefur ekki notað Canvas áður en með mikla reynslu af Uglu og Moodle. | Hefur notað Canvas í tveimur áföngum í HÍ á haustönn. | Hefur ekki notað Canvas áður en með mikla reynslu af Uglu. |
Verkefnin
Verkefnin sem leysa átti í notendaprófinu koma fram í eftirfarandi töflu ásamt þeim tíma sem það tók fyrir notendur að klára þau.
| A | B | C | D | E | |
| Farðu inn á Uglu og þaðan í Canvas síðu námskeiðsins. Hvaða leið fórst þú? | 01:00 mín | 01:02 mín | 00:30 mín | 00:14 mín | 00:02 mín |
| Hvenær eru næstu verkefnaskil – og hverju á að skila? | 02:00 mín | 00:15 mín | 01:30 mín | 00:10 mín | 00:32 mín |
| Getur þú fundið upplýsingar um hvaða verkefni/próf eru til einkunnar? | 05:00 mín | 00:05 mín | 01:30 mín | 01:48 mín | 03:18 mín |
| Hvenær og hvar er næsti tími? | 10:00 mín* | 00:07 mín | 07:10 mín* | 03:10 mín | 02:44 mín* |
| Hvar eru að finna upptökur úr síðasta tíma? | 08:00 mín | 01:37 mín | 03:30 mín | 02:14 mín | 00:12 mín |
Nánari greining á hverju verkefni
Farðu inn á Uglu og þaðan í Canvas síðu námskeiðsins. Hvaða leið fórst þú?
- Enginn notenda átti erfitt með þetta skref.
- Tveir fóru þá leið að smella á nafn námskeiðsins og smella svo á Canvas-merkið á síðu námskeiðsins.
- Þrír völdu að smella beint á Canvas-merkið við nafnið á námskeiðinu.
Hvenær eru næstu verkefnaskil – og hverju á að skila?
- Hér völdu fjórir notendur (ABCD) að fara í “verkefni” og sáu þar næsta skilaverkefni.
- Einn notandi (A) íhugaði einnig að velja “verkefni” en endaði á að fara í dagatalið og sá þar hvaða skilaverkefni var næst á dagskrá.
- Notandi C kvaðst þó nokkuð óörugg um það hvort að þetta væri rétta leiðin og réttar upplýsingar.
Getur þú fundið upplýsingar um hvaða verkefni/próf eru til einkunnar?
- Notendur B, C og D fundu þessar upplýsingar fljótt undir liðnum “einkunnir”.
- Notendur C og D greindu þó frá því að þeim þætti framsetningin óskýr og að erfitt væri að átta sig á því hvort að um réttar upplýsingar væri að ræða.
- Notandi E fann þessar upplýsingar undir liðnum “kennsluáætlun” og “um þetta námskeið”.
- Notandi A leitaði að þessum upplýsingum án árangurs undir liðunum “kennsluáætlun” og “námsmat” en fann þær að endingu undir “einkunnir”.
Hvenær og hvar er næsti tími?
- Notendur lentu í langmestu vandræðunum með þessa spurningu, enda voru misvísandi upplýsingar um þetta atriði.
- Þegar notendur tóku prófið voru ekki upplýsingar um næsta tíma inni í dagatali og í stundaskrá voru rangar upplýsingar.
- Einungis notandi D (sem var seinust til að taka prófið) fann að endingu réttar upplýsingar í dagatalinu en hafði áður leitað í kennsluáætlun án árangurs.
- Notendur C og E hófu leit sína í valkostinum “stundartöflu” en hann opnar stundartöflu á Uglunni sem hafði að geyma úreltar/rangar upplýsingar. Þessir notendur leituðu víðar, t.d. í tilkynningum, kennsluáætlun og í dagatali (þar sem ekkert var skráð á þeim tíma).
- Notendur A og B hófu leit sína í dagatali þar sem ekkert var skráð og leituðu svo víðar án árangurs.
Hvar er að finna upptökur úr síðasta tíma?
- Notendur C og E fundu upptökuna með því að fara í gegnum dagatalið og sjá þar hlekk í zoom-upptöku.
- Notendur A og D fundu upptökuna undir “námsefni” en höfðu þá leitað undir “zoom” eða eftir öðrum sérstökum möguleika fyrir upptökur úr tímum án árangurs.
- Notandi B fann upptöku undir námsefni fyrir viku 8 en hafði áður skoðað Panopto möguleika. Hér ber þess að geta að notanda B var ekki að meta sama námskeið og hinir.
Almennar athugasemdir
- Nokkrir notendur töldu viðmótið of framsetninguna ruglingslega.
- Þá var minnst á það að of mikið af allskonar efni væri sýnilegt undir námsefni.
- Einnig var kallað eftir því að öll skjöl þyrfti að vera hægt að nálgast á einum stað og einnig upptökur.