SVÓT greining

SVÓT greining á Canvas.

SVÓT greining

Við ákváðum að fara yfir þau svör sem bárust við opnum spurningum í könnun okkar og skoða þau þemu sem þar kæmu fram með SVÓT greiningu. Tilgangurinn var að reyna að greina hvar styrkleikar Canvas kæmu helst fram, hverjir gætu verið veikleikar kerfisins eða notkunar á því, hverjar væru þær ógnir sem birtust og hvaða tækifæri við sæjum til að gera kerfið enn betra.

Styrkleikar

Þegar við skoðum það sem nemendur sögðu, þá má segja að styrkleikar Canvas felist helst í;

  • App, aðgengilegt, nútímalegt, einfalt, þægilegt, hægt að nálgast allt námsefni og upplýsingar
  • Auðvelt að skila verkefnum, sjá námsmat, gildi verkefna, próf, tíma
  • Allt á einum stað, sjá sjónrænt í dagatali hvað er framundan og hverju er lokið
  • Umræðuþræðir, skilaboð

Veikleikar

Veikleikar Canvas sem helst koma fram eru:

  • Kennarar senda ekki alltaf út tilkynningu ef efni námskeiðs er breytt – fer ekki sjálfkrafa út
  • Vikuáætlanir eru mismunandi settar upp
  • Umræðuþræðir ekki settir upp af kennurum – nemendur geta ekki sett upp umræðuþræði
  • Tilkynningar, skilaboð, umræður, tölvupóstur. Vantar að kynna mismuninn á virkni og hvað hentar hverju sinni. Ef nemendur stilla Canvas miðað við notkun eins kennara – þá getur það orsakað það að þeim berist ekki mikilvægar upplýsingar frá öðrum kennurum.
  • Skilaboð henta ekki til að boða fundi/Zoom tíma.
  • Kennarar nota ekki dagatal til að miðla mikilvægum upplýsingum – nemendur hætta að nota
  • Dagatal yrði yfirfyllt af upplýsingum og yrði yfirþyrmandi
  • Vantar leit í kerfið
  • Í appi kemur ekki fram ef það eru fleiri atriði á forsíðu en komast fyrir – vantar ábendingu um að það þurfi að skruna
  • Vantar að geta merkt við námsefni sem búið er að fara yfir/lesa
  • Nemendur fá ekki tilkynningar ef eitthvað er að gerast í hópum sem þeir eru í

Ógnir

Ógnir voru fáar sem komu fram, enda kannski ekki margir ytri þættir sem telja megi að ógni Canvas nema ef veikleikar þess eru ekki lagfærðir, en nefna má:

  • Að Uglan sé enn notuð fyrir sumt varðandi námið
  • Sem hópvinnutæki er það ekki aðlaðandi – flestir nota Teams til að vinna hópverkefni

Tækifæri

Þó svo að almennt séu tækifærin tilgreind út frá ytri tækifærum, þá var farin sú leið hér að taka frekar þau innri tækifæri til að gera betur því þau virðast nær óteljandi. Sum þeirra eru til l staðar nú þegar, en kennarar/nemendur gera sér ekki grein fyrir þeim. Við drógum fram nokkur sem virðast ofarlega í huga margra:

  • Samræmi í framsetningu á upplýsingum milli námskeiða, ekki þurfi að læra inn á hvern og einn kennara og hans verklag
  • Bæta þarf uppsetningu á verkefnum/prófum, að þau séu þannig uppsett að það liggi fyrir í námsmati um leið hvert gildi þeirra er og er einkunn hefur verið gefin þá sé það skýrt hvert gildi hennar er upp í heildareinkunn.
  • Dagatalið sé notað fyrir mikilvæg atriði, tíma, verkefnaskil, próf, en samt ekki of mikið af efni
  • Setja upp kennsluáætlun í Canvas – ekki í PDF
  • Það sé alltaf skýrt hvaða námsefni tilheyri hvaða tíma
    Vanda upptökur – frekar styttri og fleiri hafa spólun til baka/áfram í Pantop alltaf virkt
  • Alltaf að senda út tilkynningu ef efni námskeiðs er breytt eftir að það er birt
  • Zoom fundir séu alltaf á sama link fyrir sama námskeið – aðgengilegir efst svo að ekki þurfi að leita að þeim í námsefni. Upptökur af Zoom fundum séu allar aðgengilegar undir Zoom flipa
  • Auka kynningu á Canvas bæði fyrir kennara og nemendur ( og á boðun funda með Zoom)