
Verkefni í áfanganum Vefstjórnun og upplýsingaarkitektúr - Vor 2021
UM VERKEFNIÐ
Verkefni um upplýsingahönnun Canvas kennslukerfisins.
Markmiðið er að gera úttekt á notendaupplifun nemenda á Canvas.
Helst ætlum við að skoða upplifun margra að kennarar séu að nota Canvas á mjög ólíkan hátt og því sé stundum erfitt að átta sig á því hvar á að finna upplýsingar.
T.d. upplýsingar um verkefni, kennsluefni, um hvar og hvenær kennsla fer fram.
Meginmarkmið er að kortleggja hvað er vel gert í Canvas og hvað mætti gera betur
Í framhaldinu væri hægt að útbúa skýrar verklagsreglur um notkun á Canvas fyrir kennara í þeim tilgangi að samræma notkun.
Verkefnið er hluti af námskeiðinu Vefstjórnun og upplýsingaarkitektúr sem kennt var á vorönn 2021 í Háskóla Íslands.
- Sjá má vinnuferil verkefnis í tímalínu.
- Hægt er að skoða kláraða verkþætti á síðunni Greining á Canvas.
- Hér má finna helstu niðurstöður.
